2. Barnaþing
Forseti: Benni
Rauði ritarinn: Nonni
Guli ritarinn: Guðjón
Kennarar: Maggý og Pattý.
Hinn helmingurinn elsta hópsins hittust. Fundurinn hófst með að því að útskýra tilgang fundarins: að tala um aðgerðir sem eiga sér stað í skólanum. Það geta verið útileikir, í samverutíma, á matartíma eða í íþróttum þegar börnin eru í Fífunni.
Megin hlutverk fundarins voru kynnt: Forseti er það barn sem stjórnar fundinum, sá sem gefur orðið með því að benda einstakling og segja nafn hans. Forsetinn velur einnig það efni sem er til umræðu. Guli ritarinn er það barn sem telur atkvæðin. Til þess má nota mismunandi aðferðir, með því að syngja, telja með tölum eða annað. Rauði ritarinn er það barn sem sem heldur aga og reglu á fundinum. Hann segir stopp, viðheldur kurteisislegu og virðingarverðu fasi þegar hann biður um þögn.
Á endanum völdu börnin fyrsta forsetann, gula ritarann og rauða ritarann. Fundinum er slitið og börnin fóru út að leika sér. Forsetinn og ritararnir fengu sitthvorn hattinn í samræmi við þá stöðu sem þau höfðu fengið: Forsetinn fékk grænann, Guli ritarinn fékk gulann og Rauði ritarinn rauðann hatt.
Athugasemd: Það væri betra að halda fundina í Háholti. Þar gætu börnin ef til vill setið þannig að þau hefðu meiri stjórn á sér.
Það er mikilvægt að krifja niður orð/útskýra eins og t.d. hvað er atkvæði. Líka útskýra ítarlega hlutverk ritara og forseta. Þetta má gera oftar en einu sinni svo börnin nái samhengi.
Kennarar geta hjálpað börnunum að tjá sig og hjálpað þeim að nota rétt orð, sérstaklega þegar barn er að reyna að tjá sig en vantar orð.
Comments