Barnaþing 29.10.2020
Barnaþingið kom saman til að undirbúa heimsmarkmiðin í vikunni. Börnin klipptu út merki markmiðanna. Síðan bjuggum við til stóra blöðru til að spjalla um jörðina.
Barnaþingið var með öðruvísi sniði í dag því mér fannst mikilvægt að kanna þekkingu barna um jörðina áður en við reynum að safna spurningum um hvernig við getum bætt hana.
Forseti: Kristín
Rauður ritari: Benni
Gulur ritari: Karl
Ég spurði opninna spurninga og þau sem vildu svara réttu upp hönd. Eins og alltaf gaf forseti leyfi, rauði ritarinn hélt aga og sagði stopp þegar þurfti (4 sinnum í þetta skipti) og guli ritarinn taldi átkvæði þegar það átti við.
· Hvernig er landið?
o Það er kringlótt. Nei, það er eins og við sjáum það: svona venjulegt. Það fer hringinn, sólin fer hringinn til að hita það.
· Hvað er á jörðinni?
o Kýr, fólk, vatn, gras, fuglar og vírusar.
· Hvað er í sjónum?
o Fiskar, krókódílar, hákarlar og hvalir.
· Hvert fer sjórinn?
o Fiskurinn étur hann, hann fellur til jarðar. það þornar upp, eldist og deyr.
· Hvert fer loftið?
o Það fer hvergi. Það hverfur vegna þess að enginn notar það.
· Hvernig öndum við?
Þau gátu ekki svarað, svo að við gerðum öndunaræfingar. Við prófum að anda upp í loftið og höldum andanum í smá stund. Þegar þau gátu ekki hætt að anda svo ég útskýrði hvernig lungun virka.
Eftir á skildu allir að loftið fer í líkama okkar, vatnið í salerninu fer beint í sjóinn, fiskurinn drekur sjóinn og við borðum fiskinn.
Að lokum spurði ég spurninga:
· Finnst þér mikilvægt að við borðum hollan mat?
o Allir: já
· Finnst þér mikilvægt að við drekkum hreint og heilbrigt vatn?
o Þau sögðu öll já.
· Finnst þér mikilvægt að við sjáum um loftið til að halda því hreinu?
o Allir voru sammála um að ganga meira og nota bílinn minna.
Við ræddum um feril sorps, og hvernig meirihluti þess lendir í sjó eða er grafið niður í jörðina. Allir vissu að fiskarnir éta ruslið og þau voru sammala um að það væri nauðsynlegt að spara plast og efni sem skaða dýrin.
Síðasta spurning var í sambandi við leikskólann okkar:
Hvað getum við gert betur til að minnka matarsóun?
· Að kaupa minna af mat svo börnin taki ekki of mikið.
· Drekka minna vatn.
Comments